Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Klukkan

Undirsíðukubbur

Ok, you never read this, and nobody wrote the whole thing!

24. nóvember 2006 klukkan 10:30
Jæja jæja hvar skal byrja, right, eins og allir bíði spenntir, en ég er þó allra spenntust, whuuut! Hissa Klukkan er margt, og geri ég mér vel grein fyrir því, en þar sem ég er með brjááálæðislegan hausverk og ógleði, sá ég mér ekki annað fært en að hringja mig veika í vinnuna, og missi ég þá því miður af deildarpartýinu, en það verður bara að hafa það! Fýldur
Mér líður andlega séð allt í einu svo klikkaðslega vel, sem er skrýtið, en þannig líður mér þegar ég er líkamlega veik! Rugl!

Síðustu dagar, eða já, gærdagurinn, og fyrri dagur hafa verið frábærir! Í fyrradag fékk ég símtal frá Ásdísi bumbustelpu, sem vildi endilega að ég kæmi til Möggu og Atla og borðaði með þeim. Atli, "my brotha from anotha motha and dada", sótti mig, en ég ákvað að koma gegn því skilyrði að ég mætti mæta á Djó bogserunum mínum. Drengur kom og náði í mig, og var það ekki skemmtileg ferð, ég fremur skelkuð! Síðan hitti ég stelpurnar mínar, og hana Emmu sætu hundinn þeirra, sem ég saknaði mikið, og hófumst við handa við að borða, sem var góð stund! Síðan var ekki mikið gert annað en að hanga, reykja og horfa á sjónvarpið með tilheyrandi öskrum, gráti og hlátrasköllum, úff bara! Tala af sér
Takk Magga, Atli, Ásdís og auðvitað Emma fyrir kveldið! Hlæjandi

Nú, í dag vaknaði ég með "ágætis" hausverk. En ég hlakkaði til, því Lára kom og sótti mig, og fórum við síðan og sóttum Grétar Snæ yndi, sem ég hafði ekki séð í meira en mánuð!!! Gráta Fórum við svo heim til mín þar sem Grétar sýndi sig, babblaði, saug sleikjó ( og bauð okkur öllum að smakka, þ.e. mér, Láru og mömmu) og trommaði og faðmaði mig í sífellu, og margt fleira! Brosandi Algjör rófa!
Síðan um kveldið kom Dísa og sótti mig, og fórum við á stóran bar, hét eikkað classic rock, þar sem verið var að halda Gullkindina, sem er semsagt verðlaunaafhending fyrir verstu frammistöðu, versta tónlistarmann, sjónvarpsmann, geisladisk, þátt, og ýmislegt fleira. Úff, ég var í ruglinu mér leið svo illa, svo mikið af fólki og ég illa sociofobic, skalf og svitnaði og fleira skemmtilegt. En annars fyrir utan það var þetta ágætis skemmtun. Árni Johnsen átti að fá heiðursverðlaunin, en mætti ekki á svæðið, svo strákur lék hann, og drullaði svoleiðis yfir hann, en sagði ég er þetta og hitt, þvílík og önnur eins blótsyrði sem hann hafði yfir kappann, eða sjálfan sig, roooosalegt, og fólk klappaði þvílíkt. Síðan fleygði hann kindinni í vegginn!!! Hissa Hvað finnst fólki um þetta??? Mér fannst þetta nokkuð gott, en ekki með eitthvað rosalega illum hug. Gleymi aldrei brúðkaupi Evu og Eldars þegar Erpur rottweilerhundur rappaði þvílíkt og já, bara tók hann í afturendann.

Jæja, held þetta sé komið bara nokkuð gott, ég þakka þeim sem nenntu að lesa Svalur

Freyzí kveður að sinni

Hæhæ!

22. nóvember 2006 klukkan 23:01
Jæja, komin með nýja síðu, já, eða hún er svona í vinnslu, en búin að henda inn fuuullt af myndum úr flottu myndavélinni minni, sem og myndum frá öðrum. Samt sakna ég strax gömlu, er svo gamaldags :P en er voðalega tóm og hugmyndasnauð núna, skrifa eikkað meira seinna, svo later, en þið megið segja mér hvernig ykkur finnst myndirnar og sollis, takk :) :D Kv. Freyja dúlega

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíðukubbur

Könnun

Geim í veraldartúr?