Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Klukkan

Undirsíðukubbur

Biddu mig um sopa af bjórnum mínum!

11. október 2007 klukkan 23:18
Svo hljómaði setningin á bakinu á mér í starfsmannapartýinu sl. föstudag. Það var s.s. fyrst starfsdagur, og þar sem við förum eftir lífsspeki fiskins, að ég held að sé rétt, sem er mjög sniðugt system, að þá var fiskiþema. Og ég á engin sérstök fiskiföt, svo Lena sætabrauð var svo góð að mála svona fínan fisk á bol handa mér, ýkt flott, ekkert smá gott að eiga svona vinkonu sem reddar málunum fyrir mig hahaha, og skutlaði meira segja bolnum til mín. Yndið! Svo já eftir skemmtilegan starfsdag, nammiát og leiki og verkefni var starfsmannapartýið. Og það var rosalega gaman, ótrúlega góður fílingur. Ég var reyndar svo þreytt eftir daginn og vinnu um morgun að snöggt varð ég ölvuð. Ætlaði síðan með tveimur samstarfsstelpum í bæinn, en á leiðinni í bílnum áttaði ég mig á því að ég gæti ekki farið, úff. Svo samstarfsdrengurinn sem var að skutla okkur skutlaði mér heim, en áður stoppuðum við á bensínstöð þar sem ég kastaði og kastaði upp. Sem var vibbi, og síðan var ég veik alla fríhelgina, og ég verð svo sjaldan veik að það var glatað, en er all better now.

Annars líður mér bara fínt, sem er ekkert annað en fínt. Mamma fór á Vík í morgun, afmælisdaginn sinn, og vona ég að hún standi sig bara vel, það er eitthvað öðruvísi, eitthvað breytt, það er bara tilfinningin, og vonandi stenst sú tilfinning eitthvað, að eitthvað jákvætt komi út út þessu, jamm og já. Síðan fór ég til geðlæknisins míns í morgun, ekki búnað fara síðan í fyrra, bara meira svona catch up, og ég með samviskubit að hafa ekki farið lengi, þegar ég hefði þurft á því að halda. Og ég bara talaði og talaði og malaði, og það var frábært. Svo þegar ég var að fara, sagði hann: Ég er svo ánægður með þig og allt sem þú varst að segja er bara frábært og jákvætt, þú ert svo sterk, algjör hetja. Og auðvitað gladdi það mig svo að mér hefur liðið svo vel í dag. Lára litla cookiemonster sótti mig, því mig langaði svo í Kringluna. Og þar verslaði ég hehe en ekki hvað, ótrúlegt hvað ég hef verslað mér margar flíkur þetta árið, sem aldrei fyrr, það er frekar svona mikið nýtt fyrir mér en fínt, það má alveg! Keypti mér æðislega köflótta kápu, svarta plain hettupeysu, og grææænar buxur. jess það var snilld að finna slíkar, sem eru líka svona fínar. Allavega það var mjög gaman að Kringlast, hitti fólk sem var gaman að sjá og fannst gaman að sjá mig. Eftir Kringlið fórum við Lára aðeins heim til hennar, en síðan sótti Magga mig, og brunuðum við uppá Skaga til Ásdísar okkar og Daníels krúsa. Slógumst bara lítið um hann við Magga hehe. Hann er svooo mikið krútt, algjör feitabolla, og með þessi þvílíkt krúttlegu hljóð, mjög spes. En börn eru með svo spes hljóð oft, svona einsog Sagan mín sem er orðin svo mikill krakki, heyri ný hljóð frá krúsunni alltaf þegar ég hitti hana, hún er orðin svo mikill prakkari. En það var auðvitað æði hjá Dísinni, sem bauð þó ekki uppá köku, vissum ekki hvurnin stóð á því, en neinei, það var allt í góðu. Fórum á Galito og átum yfir okkur, og samkjöftuðum ofaní hvor aðra, og Magga svo "fyndin" að segja eitthvað svona svo þjónustustúlkan heyrði til að við Ásdís myndum fara svo mikið hjá okkur úff en svo var það nú bara fyndið! En þetta var alveg æðislega gaman! Ofsalega kát eftir förina, nema við Magga vorum nú frekar skelkaðar á leiðinni heim í þessu vetrarmyrkri og slæmu veðri. En hér er ég nú samt enn ;)
Lára Björg Grétarsdóttirfrábært að heyra hvað þú ert jákvæð mús:) Alveg ótrúleg í gær, á þaaaani útum alla kringu, gleymdir mér stundum bara, strunsaðir í burtu, svo bara "ó, já, þarna ertu," brostir og dróst mig með þér:D þetta var bara eins og hver annar dagur hjá fólki kannski á.... ÞOrláksmessu eða eitthvað, en venjulegur dagur í lífi þínu núna, ótrúlega gaman að sjá hvað þu ert jákvæð og í góðu skapi eitthvað:) Jáhh.. sorry hvað ég var dauð í gær, var eitthvað svo þreytt og sorgmædd yfir því að geta ekki keypt mér neitt, en þú með þínar magic-fingers galdraðir fram þessar fínu naríur sem ég valdi á þig, sem ég hélt að væru ætlaðar þér. hehehe þú ert best:*
#1
12. október 2007 klukkan 09:21
Freyja Ásgeirsdóttirhehe jáh, þegar ég hitti immitt sindra og margréti x vinnufélaga, þá bara já æj þú þarna eftir blaðrið, en já var soldið hyper hehe. En já skil ei gaman að vera í Kringlunni og eiga ei pening, og vera þreyttur. Jáh naríurnar voru bara í ganni ;)
#2
12. október 2007 klukkan 15:17
Hehe já þú svo mikil frekjudós, um LEIÐ og ég fæ "son" minn í fangið þá viltu rífa hann af mér fuss og svei:) En já audda muntu samt fá að halda á gullinu mínu svona einn góðan veðurdag kanski hehe nei djók, ég mun vera góð:)
Og kom on eins og ég hef sagt áður : LIVE A LITTLE þarna á Galito, þið að fara hjá ykkur, piff til hvers? :) ég allavega lengdi hjá ykkur lífið því þið hlóguð ansi mikið:)
En já frábært að vera jákvæð marr, ógó skrítið hvað marr er e-ð geggjað jákvæður líka núna, einmitt samt á svona leiðinlegum tíma miðjan okt hver hefði trúað því:)
En setningin mín fræga, ÞETTA REDDAST ALLT Á ENDANUM:)
We love you, me and my baby boy hihi:)
#3
14. október 2007 klukkan 16:30
Freyja ÁsgeirsdóttirÞú ert sjálf frekjudós ;) en hanni Danni litli er bara svo sætur, ég var ekki búnað sjá hann lengi, en svo var þetta ok, þetta var mjög gaman :) Hahaha, við Ásdís kannski aðeins öðruvísi en þú með það, að tala svona hahaha, auðvitað fórum við hjá okkur :D En já það var mikið hlegið þarna! Auðvitað er miklu betra að vera jákvæð heldur en hitt, það er mjög þægilegt, ég var bara svo glöð eftir þennan dag :) frábær frídagur allavega :) Elska ykkur líka ;) Þetta reddast allt á endanum, með hvað samt? En samt einhvern veginn held ég hvað þú átt við, þá bara sleppum við því að segja það :)
#4
15. október 2007 klukkan 00:43
 
Magga
BARA allt sko er ég að meina, það reddast alltaf allt á endanum:) Og ef e-ð er ekki gott þá er það ekki endirinn:):):) Heimspekingur hér á ferð, hin fræga Magga lú:)
#5
15. október 2007 klukkan 10:50
Freyja Ásgeirsdóttirjájá, jújú maður hefur haft þessa setningu í hausnum langalengi, stundum hlustar maður á hana, stundum ekki, en ég veit að margir kunna við þessa setningu. Þannig að Magga lú hin fræga, ég hef aldrei heyrt um hana :S
#6
15. október 2007 klukkan 14:14
 
Ásdís
hæ!
rosalega er ég ánægð hvað lifið getur oft gengið um fót og snúið við þessum leiðindum og gert allt svo fallegt (eins og jolin). Eða, ajj þu skildir þetta orugglega ekki:) Skiptir engu. Það sem er bestast i heiminum geiminum er að manni líði vel og líði vel með sjalfan sig.. Gott hjá þér til dæmis að fara og splæsa á þig föt, eins að fara með glaðlyndri manneskju eins og Láru, það hlitur að hafa verið gaman
Getum við allar stelpurnar hist einn daginn og gert okkur svona dag, kringlan borða bio og kannski kaffihus.. engar áhyggjur, bara gert þetta?

alltaf gamanað fá ykkur i heimsokn.. ég hefði nu alveg bakað koku, ef ég hefði ekki verið með pestina, skilur.. lika ef þið hefðuð viljað koku, þá hefði eg pott þétt bakað hana bara meðan þið voruð þarna, tekur nu varla tima að henda i koku!:)
mer finnst það bara gaman

en haltu afram að vera svona jakvæd
lov u :)
#7
17. október 2007 klukkan 22:26
Freyja ÁsgeirsdóttirJá, það er alltaf gaman þegar lífið leikur við mann. En heyrðu við höfum sko alveg farið í góða kringluferð, man t.d. ein sem stóð uppúr er þegar við vorum að fara til mallorca eftir nokkra daga, tókum möggu með í kringluna og smáralind, keyptum bikini og sandala og svona gaman, það var æðisleg ferð! :)

en með kökuna það var djók, mannstu við magga vorum alveg, ha afhverju er engin kaka á boðstólnum! :O en það var jú bara djók! ;)
luv u 2!!! :* og danna ekki gleyma honum ;)
#8
18. október 2007 klukkan 01:30
 
Lena :)
ég hlakka svo til !!!!
er alveg með fiðring í mallanum yfir Airwaves...þetta verður geeeggjað :)
#9
19. október 2007 klukkan 00:06
Freyja ÁsgeirsdóttirÓ ég líka ó svo mikinn fiðring þetta verður geðveik snilld! :D sjitt hlakka svo til! og til að hitta þig ;)
#10
19. október 2007 klukkan 13:24
Þú ert sæt lítil mús.. Gaman að lesa bloggin þín, verð tíður gestur hér eftir ;)
Vonandi verður bráðum úr bíóferðinni okkar hahaah
Kys og kram :D
#11
22. október 2007 klukkan 01:23
 
Magga
OMG var í þrívíddar og hann sést bara ýkt vel marr, algjört rassgat sko:) OH u verður að fara að hitta mig sko, sjá litla engilinn:)
#12
24. október 2007 klukkan 18:26
hérna er svo barnalandsíðan okkar :) ef þú ert ekki búin að fá lykilorðið hafðu þá bara samband :)
#13
26. október 2007 klukkan 23:39
nýtt blogg takk :)

hlakka til að hitta þig næst krúttan mín :*
#14
31. október 2007 klukkan 15:59
Ásdís Birna Árnadóttirá ekki að fara að blogga sæta min. hlakka rosa mikið til að hittast og svona.. orugglega á fimmtudaginn, hafa skemmtilegan hitting, hvernig væri það stelpur!
#15
05. nóvember 2007 klukkan 21:12
hey beibí, hvernig væri að fara að koma með nýtt og ferskt blogg?:P við bíðum öll spennt!
#16
07. nóvember 2007 klukkan 18:18

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíðukubbur

Könnun

Geim í veraldartúr?