Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Klukkan

Undirsíðukubbur

She's like a rainbow

11. júní 2008 klukkan 23:08
Mikið elska ég Rolling Stones sem eru stöðugt í spilaranum í bílnum þessa dagana!

Hef ekki bloggað síðan í fyrra, þá var ég ekki í þeirri stöðu að hlustá tónlist í mínum eigin bíl, með bílpróf, frelsi, og að geta farið hvert sem er, vá, fatta það alltaf meira hvað það er ansi fínt! :)

Hvað á ég að segja í fréttum sem enginn veit, það er lítið, og og sem eitthvað væri varið í :)

Vá hvað tíminn hefur hraðspólað áfram, ég býst enn við að sjá snjó úti (þó ég finni ekki fyrir svaka kulda lengur) Hvað er ég búin að vera gera allan þennan tíma, fullt, og svo ekki fullt! 
Er bara svooo hætt að nenna að blogga.

En ég var rosa fersk áðan að fara í sund, það var svo æði, ætlað fara oftar í sumar.

En síðan, hey, mér var boðið í þrjú grill í kvöld, humm, já, en ég, ég horfði á tvöfaldan lokaþátt af Grey's anatomy.  En hey, hann var líka rosalegur ;)

Lára hérna

12. mars 2008 klukkan 17:07

Sko,... ég var búin að fá nóg af því að fara á síðnuna hennar Freyju og sjá ekkert blogg! ég tók það til ráða að brjótast inní umsjónakerfið hennar hérna heima hjá henni á meðan hún er að ýta Grétari í rólunni hennar hangandi.. hvað get ég sagt um hana?

*hún er komin með bílpróf og er alveg afbragðs ökuþór
*Hún er byrjuð að mæta á fundi fyrir fólk með bílasköfufíkn
*Hún á afmæli 14 Mars næstkomandi og mun halda ásamt Ásdísi vinkonu sinni uppá afmælið og þemað er 80'
*við erum mikið að pæla í lögum til að brenna á diska fyrir partýið
*Hún er að safna mjög sjaldgæfum star wars glansmyndum og auglýsir hér og nú eftir þessum myndum (what a nerd segi ég nú bara)

ég man ekki meira hvað er í gangi, en við vorum að tala um undirhökur áðan á meðan við vorum að keyra og ég var að reyna að kenna henni að lyfta henni upp með tungunni (rosa flott trikk sem ég kann)

Allavegana, ég er ýkt ánægð með að vera loksins að blogga eitthvað fyrir hana því þá get ég allavegana comentað og þið hin sem eruð óþreyjufull á að koma með eitthvað ferst comment!

Sko.. hún segist ekki hafa neitt að segja en það kemur einn daginn, á meðan hún er einhversstaðar að keyra, labba, í sturtu eða að borða eða á fundi (útaf sköfufíkninni) að þá allt í einu fær hún innblástur!

Elsku Sagan mín orðin eins árs!

17. desember 2007 klukkan 20:52

Tveggja daga gömul með fyrsta bangsanum sínum....




....og miklum vini honum Óla birni (það er líka hægt að sjá hann alls staðar ef farið er í Ikea) rúmlega ellefu mánaða




sætabrauð þarna alveg að verða eins árs og hress með það



Já, tíminn er fljótur að líða og þetta ár er búið að líða einsog skot, fokið eins og rokið úti, oj þessu veðri annars með kvefi og öllu sem því fylgir!

Annað, það er nottla ýmislegt skemmtilegt, og ekki, búið að gerast síðan ég bloggaði, sem að þeir sem áttu í hlut vita bara hvort eð er, og annað nenni ég ekki að skrifa. Það var bara einhver djömm, Skagaferð, Eva Rún, Madonna og annað. En Magga jú hún er auðvitað búin að eignast son, hann er algjört gull, fæddist 1.des og var hvað 12 merkur og 49 cm og bara pínupons og auðvelt að falla fyrir þessu gulli!
Jólagjafirnar alveg að verða búnar, og jólin fara alveg að koma, og svo vinnan bara með í þessu og svona, voða gaman. Ég nenni svo ekki að blogga, langar að hætta þessu, kemur í ljós.... ætla að lúlla

Gleðileg jólin :)

Augun eru blind ef þau sjá ekki með hjartanu.

12. nóvember 2007 klukkan 17:52
Langt síðan ég bloggaði síðast, kem mér aldrei í þetta, nenni þessu varla, reyni oft að byrja, en tek eitt núna....

Það sem búið er að gerast.... ég fór auðvitað á Airwaves með Lenu minni sem ég bauð með. Og þetta var bara æææðisleg helgi! Við skemmtum okkur svo hrikalega vel og dönsuðum einsog brjálæðingar, vorum með harðsperrurnar daginn eftir. Og já, ég var bara edrú, drakk aðeins en fann ekkert á mér, en skemmti mér rosalega, þessi fílingur sem maður kemst í á tónleikum, það er æðisleg tilfinning! Þeir sem stóðu auðvitað uppúr voru Mugison, þvílíki krafturinn í honum, hélt ég myndi rifna! Jagúar, þvílíkt stuð á öllum þar og þar dönsuðum við sko. FM Belfast var æðisleg, rigndi yfir mann einhverju skrauti, og svo vorum við alveg við sviðið, rosalega spes hljómsveit. Á Gus Gus var einsog ég væri á einhverju, en það var bara tónlistarvíman að flæða. Glottandi Og svo var hljómsveitin Reykjavík! Alveg æði, frábær performans, ekta ekta rokkarar þar. Svo þetta var já bara æðislegt og ég hugsaði að ég gæti strax ekki beðið eftir næstu hátíð!


Saga með Reykjavík! Átrúnaðargoðunum sínum.

Mér finnst tíminn að venju svo fljótur að líða, finnst einsog það hafi verið apríl í gær og ég gleymt að gera eitthvað. Finnst tíminn fara svona mestmegnis oft í vinnuna. En svo er ég byrjuð að gera nýja/gamla hluti. S.s. lesa! Það er líka æðisleg tilfinning. "Bækur eru besta nestið á vegferðinni gegnum lífið."
Og svo sagði fyrrum góðvinur minn Ási hluti sem lyftu mér einhvern veginn upp, sannfærðu mig aðeins, svo ég er lítillega byrjuð að teikna aftur, sem er barasta auðvitað gaman, þó ég sé enginn snillingur í þessu, en ég er með margar hugmyndir. Svo eigilega hefur mér semsagt langað að vera bara fjarri fólki, vinum og svoleiðis, og lesa, hlusta á tónlist, teikna og horfá myndir, búin að þurfa eigilega mikinn tíma ein. Myrkrið er líka að hafa einhver áhrif á taugarnar hehe.

Mamma kom heim síðasta miðvikudag. Og hún ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum! Laugadeginum áður komu Eva og Eldar nebbla og það hafði verið ákveðið að við skiptum herbergi Gauta og mömmu, en það er það sem mömmu hafði alltaf langað. Svo við hentum öllu út, þrifum herbergið, og við Eva máluðum eina umferð á veggina. Ég Gauti og Eldar tókum líka rosalega til niðri í geymslu, skil ekki hvernig allt dótið komst þarna inn þegar ég sá það fara inní flutningabílinn. Á mánudegi máluðum við Eva aðra umferð, meðan Saga sat slefandi á gólfinu bara. Og á þriðjudegi fórum við í Ikea, og keyptum gardínur, rúmteppi, tvo lampa, mottu, náttborð, kerti og kertastjaka og þrjá púða. Og líka hillur fyrir mig og Gauta. Eldar setti þetta síðan saman, við Eva máluðum síðustu umferð, og við Gauti þurftum að fara með gömlu rúmgafla mömmu niðrí geymslu og fleira, og Saga sat í slefslóðinni sinni að reyna að éta skrúfur, voða þæg og góð. Morguninn eftir, þegar mamma átti einmitt að koma eftir hádegi, komu rúmin sem Eva og Eldar höfðu átt, og mamma fékk eitt og Gauti eitt. við þrifum herbergið aftur, og síðan komu Þórir, Kikka og Karítas litla krúttið. Þórir festi upp gardínustöngina, og Kikka ætlaði að sauma í gardínurnar, en það varð smá óheppni, en það lagast seinna. Síðan fór Eva að sækja mömmu og versla með henni og svona, og ég að farast úr spenningi, að hlustá disk sem ég hafði skrifað handa henni, rosa góður, og taka allt til í íbúðinni betur. Síðan þegar mamma kom heim, var ég búin að kveikja á kertunum, og stýrði henni inn með lokuð augun, og hún fékk algjört sjokk! Hún var svooo ánægð, hún var ekkert að trúa þessu. Hún var endalaust bara vá hvernig gátuð þið... svo já þetta var vinna, en svo skemmtileg vinna líka!

Síðasta fimmtudag fór ég með Möggu, Ásdísi, Eddu og Sólveigu í Kringluna, þar átum við, ég verslaði kjól og bol, kinnalitskúlur og gloss, og við Magga fórum í klippingu, ég bara toppinn, sem var ekki ódýrt, glatað! Síðan keyrðum við niðrá Hressó að borða. Ég Ásdís og Edda fengum okkur súttlaðikökuna góðu. Aftur til baka fórum við í Kringluna, með nokkra tveir fyrir einn miða, og fórum á myndina "In the land of women", sem mig hafði reyndar ekkert langað á, við Edda ætluðum á aðra, en þessi var alveg ágæt, sæti Adam Brody, ég fylgdist aldrei með O.C. hehe. Að síðustu skoðuðum við tilvonandi íbúð Möggu í Álfkonuhvarfinu.

Á laugardaginn eftir vinnu, var ég ekki aaalveg á því að vera að fara að djamma, en síðan gaf Ásdís mér þá kosti að hún myndi telja uppá tíu, og á átta þá sagði ég jæja ok (hugsaði ég á nú nýjan kjól) Við Ásdís stoppuðum á hinni frægu Gullöld, aðalstaðnum í Grafarvogi haha, til að kaupa áfengi. Fórum síðan til Eddu, þar sem voru hún og Lára tanaða, og Ottó, og Ýla litla. Drukkum aðeins þar. Já vinkona hennar Ásdísar hætti reyndar að fara með. Löbbuðum niður í bæ í kuldanum. Ásdís var orðin ansi nett, og hún var algjör snillingur, bara fyndin, hefði ekki verið eins skemmtilegt ef ekki hefði verið fyrir hana, þvílíkt krútt. Þetta var ágætis djamm, og skemmti hún sér líka best.

Já oooof langt blogg verður ekkert í bráð, þetta var of langt, búin með kvótann!
En eitt í viðbót, við fjölskyldan erum að fara til London í febrúar! Og ég er strax farin að hlakka svo til, alltaf svo gaman að fara út, og á staði sem maður hefur aldrei farið á áður líka!!! Hlakka meira til en til jólanna eigilega, það er önnur saga.

Biddu mig um sopa af bjórnum mínum!

11. október 2007 klukkan 23:18
Svo hljómaði setningin á bakinu á mér í starfsmannapartýinu sl. föstudag. Það var s.s. fyrst starfsdagur, og þar sem við förum eftir lífsspeki fiskins, að ég held að sé rétt, sem er mjög sniðugt system, að þá var fiskiþema. Og ég á engin sérstök fiskiföt, svo Lena sætabrauð var svo góð að mála svona fínan fisk á bol handa mér, ýkt flott, ekkert smá gott að eiga svona vinkonu sem reddar málunum fyrir mig hahaha, og skutlaði meira segja bolnum til mín. Yndið! Svo já eftir skemmtilegan starfsdag, nammiát og leiki og verkefni var starfsmannapartýið. Og það var rosalega gaman, ótrúlega góður fílingur. Ég var reyndar svo þreytt eftir daginn og vinnu um morgun að snöggt varð ég ölvuð. Ætlaði síðan með tveimur samstarfsstelpum í bæinn, en á leiðinni í bílnum áttaði ég mig á því að ég gæti ekki farið, úff. Svo samstarfsdrengurinn sem var að skutla okkur skutlaði mér heim, en áður stoppuðum við á bensínstöð þar sem ég kastaði og kastaði upp. Sem var vibbi, og síðan var ég veik alla fríhelgina, og ég verð svo sjaldan veik að það var glatað, en er all better now.

Annars líður mér bara fínt, sem er ekkert annað en fínt. Mamma fór á Vík í morgun, afmælisdaginn sinn, og vona ég að hún standi sig bara vel, það er eitthvað öðruvísi, eitthvað breytt, það er bara tilfinningin, og vonandi stenst sú tilfinning eitthvað, að eitthvað jákvætt komi út út þessu, jamm og já. Síðan fór ég til geðlæknisins míns í morgun, ekki búnað fara síðan í fyrra, bara meira svona catch up, og ég með samviskubit að hafa ekki farið lengi, þegar ég hefði þurft á því að halda. Og ég bara talaði og talaði og malaði, og það var frábært. Svo þegar ég var að fara, sagði hann: Ég er svo ánægður með þig og allt sem þú varst að segja er bara frábært og jákvætt, þú ert svo sterk, algjör hetja. Og auðvitað gladdi það mig svo að mér hefur liðið svo vel í dag. Lára litla cookiemonster sótti mig, því mig langaði svo í Kringluna. Og þar verslaði ég hehe en ekki hvað, ótrúlegt hvað ég hef verslað mér margar flíkur þetta árið, sem aldrei fyrr, það er frekar svona mikið nýtt fyrir mér en fínt, það má alveg! Keypti mér æðislega köflótta kápu, svarta plain hettupeysu, og grææænar buxur. jess það var snilld að finna slíkar, sem eru líka svona fínar. Allavega það var mjög gaman að Kringlast, hitti fólk sem var gaman að sjá og fannst gaman að sjá mig. Eftir Kringlið fórum við Lára aðeins heim til hennar, en síðan sótti Magga mig, og brunuðum við uppá Skaga til Ásdísar okkar og Daníels krúsa. Slógumst bara lítið um hann við Magga hehe. Hann er svooo mikið krútt, algjör feitabolla, og með þessi þvílíkt krúttlegu hljóð, mjög spes. En börn eru með svo spes hljóð oft, svona einsog Sagan mín sem er orðin svo mikill krakki, heyri ný hljóð frá krúsunni alltaf þegar ég hitti hana, hún er orðin svo mikill prakkari. En það var auðvitað æði hjá Dísinni, sem bauð þó ekki uppá köku, vissum ekki hvurnin stóð á því, en neinei, það var allt í góðu. Fórum á Galito og átum yfir okkur, og samkjöftuðum ofaní hvor aðra, og Magga svo "fyndin" að segja eitthvað svona svo þjónustustúlkan heyrði til að við Ásdís myndum fara svo mikið hjá okkur úff en svo var það nú bara fyndið! En þetta var alveg æðislega gaman! Ofsalega kát eftir förina, nema við Magga vorum nú frekar skelkaðar á leiðinni heim í þessu vetrarmyrkri og slæmu veðri. En hér er ég nú samt enn ;)

Stanslaust stuð!

01. október 2007 klukkan 00:59
Vá hvað það er stundum gaman að vera til hehe, nei segi svona :)

Í gær, eða laugardagskveldið, eftir níu þegar ég var nýkomin úr vinnunni ákváðum við Magga að hundskast í afmælispartýið hennar Eddu krúttu. Vorum því miður ekki á því fyrst, ég var vibbalega þreytt og svona, en sé svo ekki eftir því! Fórum á Njálsgötuna til Eddu og Ottós og þar hófst drykkjan, mínus Magga og Jenný Lára. Það var bara gaman, mikið hlegið og svona, Ásdís átti mómentið í ég hef aldrei, vá hvað allir hlógu hún var bara krútt hahaha, hvítar nærbuxur já, hún er snilli! Enn að hlæja að þessu. Svo fékk ég að taka mynd af Möggu og Ottó þar sem þau báru saman bumbur, og var Ottó nú með stærri haha :D

Um hálftvö héldum við í bæinn, ég, Ásdís, Edda, Jenný, Anna, Berglind og Alma. Sáum svona "sniðugan" slag á leiðinni úff, finnst þetta rosalegt að sjá svona. En við fórum síðan á Hressó, eða ég, Ásdís, Edda, Berglind og Alma. Þar var mikið dansað og skemmtu sér allir vel. Brjálæðislega heitt þarna reyndar og mikið af fólki. Fórum síðan ég og Ásdís og Edda og tveir strákar á Glaumbar þar sem við héldum áfram. Svo fór Ásdís, og síðan Edda, og ég bara ein. Neinei hitti Aron hennar Særúnar. Þau eiga btw von á litlu kríli á næsta ári :* og hann var þarna með Binna bróður sínum, og vini sínum og Hjalta frænda sínum, var þarna með þeim þar til lokaði, og það var líka bara gaman, og fékk far með þeim heim, þar sem pabbi þeirra býr hér fyrir neðan, komu upp í sígó líka. En já þetta var snilld, og ég var nú svolítið þunn í vinnunni í kveld en þagerekkertil :)

Svo man ég ekki hvað ég er búnað vera að gera. Þrisvar í bíó, Knocked up með Möggu, Hairspray með Möggu, Láru og Sólveigu, og Chuck and Larry með Láru. Allt skemmtilegar myndir, hló ekkert smá mikið á Chuck and Larry :) Síðustu helgi var ekki eins sniðugt djamm, en kvöldið var svo skemmtilegt :) Ásdís og Lena komu í heimsókn, og ég bauð þeim svo í mat bara, tortellini í piparostssósu, ótrúlega gott og gaman :) Og þá keypti ég líka bíl :) Renault Megane rosa sætur.

Svo veit ég ekkert meir hehe :)

Imagine that!

10. september 2007 klukkan 16:51

Jæjah....

Best að skella inn smá hérna. Svo langt síðan síðast, veit ei hvað ég á að segja. Síðast þegar ég bloggaði var ég á leið til Akureyrar minnir mig, með Atla og Möggu. Þar fórum við heim til Nínu, þar sem við hittum ásamt henni Jóhönnu, Eddu og Vallýju, og svo var Ásdís ei langt undan. Þar var blaðrað og drukkið, þeir sem máttu. Ég góð eftir tveggja tíma svefn, skelltum okkur í bæinn, mínus þessar óléttu. Þar skemmti ég mér mjög vel og lenti á þvílíkri danssveiflu. Síðan dó ég heima hjá Nínu. Daginn eftir var ég svo heppin að fá pizzu, svo hún og sturta komu í veg fyrir þynnku Glottandi 
Fórum aðeins til Dalvíkur, mjööög mikið af fólki, svosum ekki mikið um að vera. Við fórum síðan voða fín og flott, ég, Nína, Ásdís, Magga og Atli alla leið til Hólmavíkur að snæða á uppáhaldsstað Möggu, henni Sölku. Það var æðisleg stund og sjúklega góður matur, humarhalaelskurnar hennar Möggu stóðu fyrir sínu. Fórum sprungin þaðan og renndum við á Laugum, og það var sniiiilld að sjá staðinn eftir svo langan tíma! Góð tilfinning að sjá smókinn og bara allt, fórum nú bara inní gamla skóla að hlæja af skólamyndunum og svona. Saknaði þess mikið að sjá nú elsku gamla staðinn. Um kvöldið fórum við Nína svo á djammið og skemmtum við okkur rosalega vel, hitti Ingu Margréti, það var voða gaman þetta kvöld bara, djamm til morguns jájá.

Fór á Ljósanótt, það var ágætt, voða fín, ætlaði að vera edrú með Möggu minni, endaði með Láru sem hellti mig fulla, hvílíkt og annað eins, enda var ég rotuð um þrjú, og þunn í vinnunni daginn eftir, aldrei aftur!

Hittingur heima hjá Ásdísi, hitta Daníel litla sem hefur stækkað heil ósköp litli kúturinn!

Fór með Evu og auðvitað Sögu dúllmundinum mínum að verslast síðasta föstudag, man ekki hvenær ég fór síðast með sys að versla, en það var gaman, fann loks buxur flottar, búin að missa trúnna á að til væru flottar buxur á landinu haha. Keypti líka snilldarskó á miklum afslætti í kaupbæti, alltaf gaman að verslast. Passaði svo fyrir hipp og kúl fólkið um kveldið, eða já fór fyrst með Möggu og Stínu á Hressó, og við Magga náðum varla andanum fyrir mali en samt gat ég etið svona mikið, takk fyrir það Magga mín!
Daginn eftir, Laugardag löbbuðum við Eva og Saga Laugarveginn í grenjandi rigningu. Ég fór að skoða gleraugu og fékk ein rosa flott lánuð heim til að venjast þeim. Er samt ekki en búin að því, Evu fannst þau voðalega flott en ég er ekki viss, kann alltaf betur og betur við þau, held ég kaupi þau bara samt, langar svo í gleraugu og þessi eru flott, alveg jafn erfitt að venjast öðrum. Fer í sjónmælingu á miðvikudag og "splæsi" þeim á mig. Eva bauð mér síðan á Reykjavík pizza company. Þegar við komum aftur á Skúló vorum við blautar og þreyttar og ég að kafna úr kvefi, svo ég beilaði á djammi með stelpunum mínum, sry stelpur! Leiðindapúki. Langaði bara að slappa af og ekki að hreyfa mig. Fór því til Lenu, og það var svona líka kósí. Byrjuðum að horfá þættina Dexter um tíu, og hættum ekki fyrr en serían var búin, þá var klukkan átta um morgun eða meira! Gátum bara ekki hætt, sniiildarþættir! Langar í meira!

Ég get ekki sett inn myndir útaf einhverju skuldaveseni, hvílíkt rugl, kannski seinna....

Don't let me get me!

03. ágúst 2007 klukkan 08:07
I'm my owm worst enemy, it's bad when you annoy yourself!

Jæja bestu krakkakríli!
Nú er illt í efni, því hér kemur furðulegt leiðinlegt snilldarblogg! (það fer eftir því hvernig þið gemlingar lítið á það!) Byrjum á þessu klassíska! Hvað hef ég verið að gera undanfarið??? Ég veit það er rosalega “spennandi” lestur.  Ég fór jú á Hróa, ég verð að skrifa í smáatriðum, ég ætlaði að skrifa um ferðina, en svo langt síðan ég fór að ég nenni ekki nema smá...-Ég og ungfrú Skellibjalla pökkuðum á síðustu stundu, lögðum því seinna af stað enn við höfðum ætlað okkar. Dauðþreyttar á vellinum, dauðþreyttar í flugvélinni, dauðþreyttar að labba og finna svæðið, dauðþreyttar að leita að hentugum stað til að tjalda á, þar sem við óðum drulluna og hneyksluðumst á okkur yfir að hafa ekki keypt stígvél(i). Eftir uppsetningu tjalds héldum við aftur í Köben, þar sem við skelltum okkur í tívolíið. Þar skemmtum við okkur konunglega! Besta tilfinning í heiminum er að vera á leið í fallturninn, skítlofthræddar, skjótast upp, og á niðurleið að fá þessa frábæru gleðitilfinningu, og svo gaman að það var ekki einu sinni hægt að hlæja. En eftir tvo tíma gátum við ekki meir fyrir þreytu. Fórum í stígvélaleit en varð ekkert ágengt. Ég sofnaði í tveimur taxaferðum, og uppvið vegg, og við báðar í lestinni til baka, en gaur vakti okkur. Fórum í “notalegt” tjaldið og ég steinrotaðist.Daginn eftir var gerð stígvélaleit, og vorum við svo gríðarlega heppnar að geta keypt stígvél(i) á svæðinu. Hvílík gleði, algjör gvvvvuuuðsgjöf, loksins gátum við vaðið pollana! ... Um kveldið sáum við svo Bjarkartónleikana. Í tveimur peysum, stígvélum, með regnslár og regnhlíf vorum við samt blautar og kaldar og við að fá hita. Löbbuðum með glamrandi tennur að tjaldinu okkar, og þegar við vorum búnar að troða okkur úr fötunum, reyndist þá tjaldið blautt. Reyndum að sofna, en vorum við að verða veikar, svo við urðum að FARA og það STRAX! Óðum því drulluna að útgangi “helvítis” Tókum rútuna í Köben, skítugar með blautan farangur, og fengum okkur blund fyrir utan lestastöðina ásamt fullt af öðrum skítablesum. Ég sat þarna og hugsaði bara wtf shall we do, með engan síma og sollis vesen. Mikið var nú gott að geta hringt í Lenusið úr tíkallasíma. Ákváðum að fara til systur Láru sem býr í Svíþjóð. Eftir langa ferð, að þá... var hún ekki heima! Við enduðum í litlum bæ í Lund. Hostelið var lokað, svo við enduðum á **** hóteli. Útkeyrðar og svefnlausar. Þvoðum og hengum upp skítugu fötin til þerris, og gátum farið í BAÐ!! Við vorum að rifna úr hamingju! Og RÚM! Þægilegasta í heimi. Það var snilld að vera á þessu hóteli, dýrindis morgunverðarhlaðborð. Svo var þetta ekki svo dýrt. Um kvöldið fór ég í göngutúr í gúddí, ekki búnað borða í maaarga klukkutíma. Settist á Kínverskan veitingastað og leið vel. Þegar út var komið vissi ég ekki hvar ég var, spurði til vegar og hélt að hótelinu. Eftir meira en klukkutíma labb, sem var þó mjög notalegt, ég var svo high on life, EN, komst að því að ég hafði villst! Var komin hring! Æðislegt, þá leið mér ekki vel! Hvað átti ég að gera. Stökk í veg fyrir leigubíl sem skutlaði mér á hótelið æðislega. Þar flippuðum við bara og höfðum það æði. Daginn eftir fórum við í svo flotta hippabúð að kaupa flott glingur fyrir ástvini. Héldum síðan til Gautaborgar, mig langaði svo í Liseberg. Þriggja tíma ferð. Eftir upplýsingar um næstu lest komumst við að því að sú síðasta færi eftir hálftíma! Svo við fórum fíluferð! Óheppilegt en soldið skondið. Daginn eftir var erfitt að kveðja herbergið með æðislega baðinu og æææðislega rúminu. En í Köben héldum við í Tívolíið, sem aftur var snilld! Fórum á fínan veitingastað, og gerðumst fullar og hressar mjög, og sungum og trölluðum og fórum í tækið, og spjölluðuðm við alla! Fórum sauðdrukknar svo í flugvélina, eftir þessa furðulegu NONHróaferð! ;)   Nóg um það. Litli snúllinn hennar Ásdísar heitir nú hinu fallega nafni Daníel Bergmann. Ég dýrka þennan litla kút! J Við Magga áttum góðar stundir með Ásdísi og honum síðastliðinn sunnudag. Ásdís bakaði meira segja köku, sem var svo góð að ég borðaði þrjár sneiðar! *roðn*

Fór á Hereford með Möggunni, voða fínar á því. En það er snilld að gera sollis, fara svona með fólkinu sem manni þykir væntum, og vá maturinn var snilld! Já og Magga er með lítinn Mögguson Númason í ofninum!


Hitti fyndnasta fugl í heimi, átti erfitt með andardrátt af hlátri, sjálfur hló hann mikið við það að herma eftir mér, eða hún, Fenja.
Búnað fara þrisvar í bíó, ævintýra, hryllings og drama, allar góðar. Allar fór ég á með Möggu, mjög skrautlegt. Blaður, geðveikishræðsla og grátur.Svo hitti ég Lenu í kveld, nei nú er kominn nýr dagur þegar ég skrifa djók. Við átum tæj og lékum við sætu lúða”syni” hennar, og Lena var bara krúttleg í náttkjólnum og við blöðruðum yfir okkur og vá sá einhver Law and order SVU, rooosalegur þáttur úff. Og svo fyndin saga sem ekki má upplýsast en ég rifnaði og öskraði úr hlátri (hverjum finnst það ekki æðisleg tilfinning að hlæja svona mikið ;) ) Ég var að lesa svona alls konar bækur sem ég hef skrifað alls konar í, og svona skóladagbækur frá því ég var á Laugum. Muniði, Laugar (eða eins og einn aðili sagði, -this one time at band camp...) voru snilld, það sem marr saknar Lauga. Maður býr að því alla ævi að hafa verið þar, með góðu og slæmu hlutunum. En já, þessar bækur eru snilld. Þó ég hafi verið þunglynd mjög var ég alltaf að skrifa eitthvað rugl í þær, teikna, setja inn lagatexta, spjalla við fólk með skrifum, skrifa lagatexta og blabla. Rakst á ýmislegt sniðugt. Og hey Magguz, mannstu þegar við vorum að tala um bestu hrósin sem marr hefur fengið. Allir hafa nú fengið þau mörg, og þetta er ekki beint hrós en, æj mér fannst þetta svo lítið og sætt...Æji nei ég er hætt við að skrifa þetta, þetta er svo væmið en svo ótrúlega sætt en langt, segi þér seinna bara... humm humm, æði æði mér finnst ég ekki sem verst núna í augnablikinu ónei ;) Jæja geðveiki! Sjitturinn titturinn h**** og m*****! Ég var búin að vera feit og ljót og þunglynd og ég bara veit ekki hvað og hvað. Svo reykir marr hass (vá ég tala einsog ég sé gegt að sýna mig og athyglissjúk (ha?)) og allar þessar sjúku hugsanir drive me to a mental hospital now please! Já snjókorn falla! (ekki enn í RVK samt!) Svo miklar hugsanir hræðilegar ýktar tvístraðar of miklar allt hefur tilgang hægt að botna í öllu saman og marr veit hvurs vegna veröldin varð til jájá, myndlistarhugmyndir og hugsanir of mikil sköpunargáfa og margir heimar og þessi heimur bra of venjulegur, ég er nú orðin feit og sæt og hef gaman af fótbolta í leikfimi á sokkunum ég öskra og æpi og hoppa af hamingju því ég var enn freðin, geislandi gervihamingju veröldin lygi hvurnin veit ég að ég er til, æj vá þetter bara klikkun ég er að missa mig og fara í hringi en Lára er krútt og ég er að fara á Airwaves með henni (fór ekki henni með) og vá hvað allt er venjulegt ég sit hér í ensku og veit eigi í þennan heim né annan og skynfærin dofin en nú steinþegi ég!
19. okt. '05
(ok, skömm skömm, hver þekkti mig svona, því ég var jú oft svona, humm, í stórum sem smáum dráttum. Kannski þekkir mig enginn, þetta var bara smá skvetta)
Og það er það sem ég ætla að gera, eftir að ég birti þetta á ég eftir að átta mig á að ég skammast mín gríðarlega. Blogg búið í einhvern tíma þeink jú þangað til ég jafna mig. Lengsta blogg sögunnar!Skrifið nú samt eitthvað gott eða slæmt! Sá sem segir annahvort það besta eða versta fær verðlaun, doritos að eigin vali, þ.e. cool american eða cheese, það er annaðhvort eða sem fólk vill... Munið svo þetta....“Hate is baggage, life’s too short to be pissed of all the time, it’s just not worth it!”

Þykir vænt um þig, og þig líka!


It lies in the eyes upstairs! Já pælum aðeins í því!

No one remembers your name...

13. júlí 2007 klukkan 14:18

...when you're strange!
Nú er sumarfríið mitt búið! Langt var það ekki, en það er bara svona. Það var nú mjög gaman svo það er gott!

Ég fór á Hamingjudaga á Hólmavík ásamt Möggu, Láru, Særúnu og Maríu. Og svo var auðvitað Ásdís þar til að hitta okkur, og fullt fleira fólk. Við lögðum af stað um fjögur á föstudegi, gríðarlegur spenningur í gangi. Pikkuðum Særu upp, og borðuðum reyndar í Baulu áður. Að skipan Möggu byrjuðum við hinar svo að drekka og syngja. Hittum fólk í Brú sem við djömmuðum svo með yfir helgina. Fórum síðan þessa hrikalegu leið til Hólmavíkur, og alltaf átti Hólmavík að vera bakvið næsta klett, sem var þó ekki, en það var mikil gleði þegar við sáum bæinn, loksins! Náðum í Emmu, og hófumst síðan handa við að tjalda, þ.e. ég og Lára með okkar, mér gekk samt ekkert voða vel við það, hehe. Svo var bara drukkið með öllu skemmtilega fólkinu þarna, svo kom líka Ásdís sæta. Einhvern tímann, man ekki hvenær því ég var orðin frekar ölvuð, fórum við síðan á kaffi riis, barinn í bænum. Þar var svona fínt, dönsuðum allavega voða mikið, við stelpurnar. Það brutust út slagsmál og allt í einu flaug ég aftur fyrir mig. Svo þegar við Magga vorum að labba þarna upp stiga, brotnaði handriðið þegar við ýttumst á það vegna slagsins. Ég náði að grípa í eitthvað, en einhver greip svo í Möggu, sem þó datt. Það var ekki gaman að sjá Möggu svoleiðis grátandi eftir það, skíthrædd um litla bumbubúann auðvitað, og mikið rispuð. Hún fór uppá slysó, því það var maður að vinna þarna svo áhyggjufullur að hann hringdi. Svo reyndist sem betur fer allt í lagi með hana, en hún fór að sofa í heimahúsi þó hún hefði viljað vera lengur. Við Lára og fleiri skemmtum okkur svo á tjaldsvæðinu til níu um morguninn í sólinni, en ég man samt ekki svo mikið, voðalega ruglingslegt því ég hafði drukkið soldið mikið. En það var voða gaman, skemmtilegt kvöld þrátt fyrir að ýmis drama hafi komið uppá! Við Lára vöknuðum svo um tólf í gufubaði, við það að Magga kom og vakti okkur, ekki með brosi á vör því Númi barnsfaðir hennar hafði dáið í tjaldinu okkar. Það hefur ekkert litið voðalega vel út hehe. Ég var nú ennþá drukkin einhvern veginn þegar ég vaknaði, og leið ekkert voðalega vel fyrir miklum svima, og illt í skrokknum. En eftir smá mat leið mér skár. En ég náði samt ekki að leggja mig neitt. Við Lára fórum svo með Svavari Kára að keyra um bæinn, sem er ekki neitt mjög stór! Borðuðum síðan pizzu á Kaffi riis og hlógum eins og brjálæðingar! Versluðum síðan smá meira áfengi, því það náði að klárast næstum þó ég hefði keypt skammt fyrir helgina, vissi ekkert hvort það væri áfengisverslun þarna. Hittum svo stelpurnar og fleiri. Við Lára vorum síðan svo heppnar að geta komist í sturtu hjá uuuu vinafólki foreldra Ásdísar. Við löbbuðum með henni og litla kútnum þangað og það var æðislegt að komast í sturtu. Sá þó að ég var þakin marblettum, og hef ekki alveg hugmynd um hvers vegna. Síðan fórum við aftur upp á tjaldstæði. Ásdís fór að svæfa kútinn síðan, Magga og María fóru að borða og svona. Við Lára fórum að drekka í fellihýsinu hans Núma ásamt honum, Mumma, Svavari Kára, Danna og Særúnu. Það var rosalega gaman, þó ég hafi verið að detta úr djammstuði sökum þreytu, en það fór svo. Síðan bættust alltaf fleiri við, og það var sungið og drukkið og hlegið mikið og skemmt sér. Síðan fórum við stelpurnar að gera okkur fínar. Svo fóru allir á ball með Heiðu Ólafs, sem var svosem ekkert voðalega þess virði, en það var ágætt bara. Misskilningur og drama þó og svona, haha. Ég geymdi áfengi fyrir fólkið sem laumaði því inn, það var ok. Héldum samt að þetta ætti að vera flöskuball þar sem mátti alveg labba með inn, en þetta var ok svona. Síðan þegar ballið var búið var fólk bara að djamma í grasinu innan um tjöldin, voðalega gaman. En svo kom leiðindamál uppá, svo Magga og Lára vildu fara og það strax, ég ofurölvi og ónýt fylgdi bara með, hálfsofandi og rugluð mestalla leiðina til baka bra. Skildum greyið Særúnu eftir, en hún var svo heppin að fá far með Svavari Kára. En þetta var alveg rooooosalega gaman, er ennþá að hugsa um þessa helgi! Takk fyrir mig....
Hróaferðin kemur svo seinna!

Uxahryggjahalanegrablómkálssveppasúpa

23. júní 2007 klukkan 00:41
Já vááá hvað tíminn er fljótur að líða! Nú er sko ekki lengur mánuður til Hróaskeldu, svei mér þá! Kvíði, kvíði og miiikil tilhlökkun auðvitað líka!
Jæja, margt búið að gerast en man aldrei nema helminginn.
En allavega, síðasta helgi var rosalega skemmtileg! Fór með Láru uppí bústað á Þingvöllum, á rosalega fallegum stað. Já, og ég keyrði þangað, hehehe. Þá komu líka Magga mín, og Linda, og þarna voru Bjarni, Haffi og Reynir í bústað. Það fyrsta sem ég gerði var að missa mig á trampólíninu. Síðan var okkur boðinn rosalega góður grillmatur, algjör eðall, og plús kartöflugratín hehe. Síðan hófumst við handa við að drekka. Nema auðvitað hún Magga sæta sem ber lítinn dreng eða telpu undir belti. Hlæjandi En hún fór bara á þykjustufyllerí. Svo spilaði Haffi svona glæsilega á gítar, og það var svooo gaman að syngja með. Ég varð nú veeel ölvuð. Sumir fóru í pottinn, en ég vildi nú helst syngja... I wanna grow old with you, sæta lag! Sniiiilldarkvöld, þó það endaði pínu kreisi, hehe.
Daginn eftir, eða já, fór að sofa klukkan sjö, var ííískalt, en vaknaði að kafna úr hita, og vel þunn. En hún Lára myndarlega bakaði pönnsur oní okkur, namm namm, þá leið manni betur! Við Lára fórum síðan afturtil RVK. En síðan um kveldið fórum við bara aftur í bústaðinn. Lára veik, og ég beilaði á ammælispartýinu hans Eldar, var soldið svekkt en jæja. Ég keyrði aftur í hlað, og við Lára sungum listavel á leiðinni. Glottandi
Við vorum bara edrú með strákunum, en það var samt voðalega gaman. Fórum á hjólhýsasvæði þar sem við þekktum engan, foreldrar og ættingjar Haffa. Mamma hans ofurhress kelling, og við tókum lagið með fólkinu, það var bara gaman. Renndum síðan aftur í bústaðinn, spössuðumst bara, fórum aðeins í party og co, en það var bara stutt, einhvern veginn ekki stemmari í það, tókum bara lagið við undirspil Haffa enn á ný. Ég fékk viðurnefnið hemúlsnælda, Bjarni hemúlafi, Haffi fullvaxinn hemúll, Reynir hemúlrusli, en Lára var nú held ég bara barbamamma haha. En já, fékk þennan bilaðslega sára magaverk, svo ég tók svefnlyf, og þá átti ég að vera farin rúmið fimm mínútum seinna, og ég gerði það, dauðþreytt, en varð samt svona hress, en alveg dofin, magaverkurinn farinn, en ég fór aftur að syngja með strákunum, og átti erfitt með að standa í lappirnar, en fór loks að sofa í ofsalega þægilegu rúmi. Daginn eftir var marr bara að leika sér í hitanum, fór fimm sinnum á trampólínið, gat bara ekki hætt, algjör snilld! Hlæjandi
En já, margt annað að gerast, brúðkaup tilkynnt, fórum við Magga að hitta Dísina okkar og yndið hennar á Stælnum, bara gaman, nema ég held ég leggi ekki í það að fara aftur á þennan stað, ha Magga.
Svo eru Hamingjudagar á Hólmavík næstu helgi, verður ábyggilega bilaðslega gaman, ætla ekki að búast við öðru! Ég, Magga, Ásdís, Særún, kannski Lára, og fullt af öðru fólki auðvitað, snilld snilld!
En já, svo sakna ég Lenu minnar líka sárt, ég er svooo á leiðinni að hitta þig elskan mín!
Gott í bili, vinna tomorrow...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíðukubbur

Könnun

Geim í veraldartúr?